Jææjah.. ég er farin að trúa fólki þegar það segir að ég sé
óheppnasta manneskja í heimi :/
Ég var í sveitinni að vinna og króknaði úr kulda svo nú er ég
fárveik heima og þarf að lifa á sýklalyfjum... Svo var ég að komast
að því að verkurinn í tönninni minni er ekki bara fylling að jafna
sig heldur er rótin ónýt eftir endajaxlinn minn og ég þarf að fara
í rótarfyllingu á miðvikudaginn svo ég kemst ekki að vinna aftur
fyrren eftir það!
Já, þegar ég hélt að slæmu fréttirinar væru allar komnar til
skila þá hringi ég í Jóhönnu og ætla að fara að skipuleggja
innkaupalista fyrir vinnuna í sveitinni (hún kemur með) eeen... þá
þarf hún að fara í aukapróf í byrjun júní og nær ekki að koma
fyrren eftir það svo nú þarf ég að finna einhvern annan að vinna
með mér í þangað til (sem er ekki auðvelt) og annars verð ég
atvinnulaus því þetta þarf að byrja strax!!
Og já, ég gleymdi... þegar ég fór útí apótek að ná í lyfin mín
þá gleymdi ég þeim og ég var komin lengst útí bæ þegar ég fattaði
það svo ég þurfti að fara aftur! 
Svona er líf mitt í hnotskurn! Hvert óhappið á fætur öðru!
...og já.. var að fá meil frá shop-inu sem ég keypti kápuna í um
daginn.... þær eru búnar svo ég þarf að bíða heillengi eftir henni!
